top of page
ListaVestrid LOGO.png

ListaVestrið
Flateyri

Undanfarin ár hafa Galleríið Undir Brúnni, Gamla Slökkvistöðin

og Tankurinn staðið fyrir árlegum menningarviðburðum sem

laða til sín fjölda fólks og vekja stöðugt meiri athygli. Þessir þrír

staðir tengjast sterkum böndum og hafa staðið fyrir sameigin-

legum viðburðum, haft opnanir á sama degi, hjálpast að við að

kynna viðburði hvers annars, samræmt opnunartíma og dæmi eru

um að viðburðir hafi ferðast á milli sýningarrýma. Árið 2025 var

ákveðið að sameina viðburðina undir einn hatt undir

nafninu ListaVestrið - menningarhátíð á Flateyri. Markmið

hátíðarinnar er að bjóða uppá metnaðarfulla menningarviðburði,

fá okkar fremstu listamenn til að taka þátt, efla menningarlíf á

vestfjörðum og laða að gesti og gangandi.

UNDIR BRÚNNI

Galleríið Undir Brúnni er einstakt listagallerí, staðsett

undir gamalli steyptri brú á Sólbakka, rétt fyrir utan

Flateyri. Þetta óvenjulega rými hefur vakið athygli

fyrir óhefðbundnar innsetningar. Fyrsta sýningin var

opnuð sumarið 2022 og síðan þá hefur nýr lista-

maður spreytt sig árlega á þessu sérstaka gallerýi.

Myndlistarmaðurinn Finnur Arnar reið á vaðið 2022,

sumarið eftir sýndi Hrafnkell Sigurðsson undir brúnni

og árið 2024 var það svo listakonan Hrafnhildur

Arnardóttir, öðru nafni Shoplifter, sem sýndi verk sitt

Gátt. Árið 2025 var það svo myndlistarkonan

Ragnheiður Gestdóttir sem sýndi verkið Súla lll.

Sýningarnar Undir brúnni standa í eitt ár í senn.

  • Instagram

TANKURINN

Tankurinn á Flateyri er merkilegt mannvirki með langa og fjölbreytta sögu.  Upphaflega var hann reistur árið 1925 sem geymslutankur fyrir lýsi. Síðustu ár hefur Tankurinn öðlast nýtt líf sem skapandi rými og er í dag vettvangur fyrir ýmsa viðburði, þar á meðal tónlistarviðburði, listsýningar, gjörninga auk þess sem rýmið hefur verið nýtt fyrir veislur. Óhefðbundin notkun rýmisins undirstrikar sköpunargáfu samfélagsins á Flateyri og sýnir hvernig hægt er að umbreyta iðnaðarbyggingum í menningarlegum tilgangi. Sumarið 2024 hélt myndlistarmaðurinn Kristján Björn Þórðarson sýningu undir nafninu Endurlit / Reminiscence í Tankinum. Sumarið 2025 var svo frumflutt nýtt

tónverk og hljóðinnsetningin Jökull eftir tónskáldin Eirík Stephensen og

Rún Árnadóttir.

Gamla Slökkvistöðin

Flateyri

Gamla Slökkvistöðin Flateyri hýsti áður, eins og nafnið bendir

til, slökkvilið þorpsins. Á undanförnum árum hefur húsið fengið

nýtt hlutverk sem menningar- og listamiðstöð, þar sem fjöl-

breyttir viðburðir og sýningar hafa verið haldnir. Þessi um-

breyting Gömlu Slökkvistöðvarinnar í menningarhús hefur

orðið mikilvægt framlag til menningarlífs Flateyrar og styrkt

samfélagið með því að skapa vettvang fyrir listsköpun. Árið

2022 sýndi í slökkvistöðinni myndlistarkonan Jean Larson og

árið eftir var það listamaðurinn Kristján Jónsson sem opnaði

málverkasýninguna Málverkasýning. Sumarið 2024 hélt svo

myndlistarmaðurinn Hrafnkell Sigurðsson sýningu á ljósmyndum

af innsetningunni sem hann var með undir brúnni árið áður og

stóð uppi allan veturinn. 12. júlí 2025 opnaði myndlistarkonan

Gabríela Friðriksdóttir sýninguna Ströndinni og síðar sama ár

opnaði syningin RÓLÓ, samsýningin ungs fólks úr Lýðháskólanum

á Flateyri, í Slökkvistöðinni.

  • Instagram
Flateyri_gamlaslokkvistodin.jpg

2026

11. Júlí

15:00 Undir Brúnni: Krassa Sig

15:30  Tankurinn jarðhæð: Rannveig Jónsdóttir og Gunnar Jónsson

16:00  Tankurinn efri hæð: Einar Örn Benediktsson

17:00  Gamla Slökkvistöðin: Hulda Hákon og Jón Óskar

2025

Undir Brúnni : Ragnheiður Gestdóttir. Súla lll

Tankurinn : Eirík Stephensen og Rún Árnadóttir.  Jökull / Glacier

Gamla Slökkvistöðin : Gabríela Friðriksdóttir

2024

Undir Brúnni :  Hrafnhildur Arnardóttir /Shoplifter, Gátt / Portal

Tankurinn : Kristján Björn Þórðarson. Endurlit / Reminescense

Gamla Slökkvistöðin : Hrafnkell Sigurðsson

​

2023

Undir Brúnni : Hrafnkell Sigurðsson Innhverfing

Gamla Slökkvistöðin : Kristján Jónsson. Málverkasýning

2022

Undir Brúnni : Finnur Arnar Nú - Þá / Now - Then

Gamla Slökkvistöðin : Jean Larson

ListaVestrið

félagasamtök

Bárugötu 4, 425 Flateyri

Ísafjarðarbær

kt: 630326-1410

 

 

© 2026 Önundarfjörður

bottom of page